Appabei segir sína skoðun

08.10.2008 16:28:50 / astasteinunn

Mardís systir 20 ára

Elsku yndislega systir mín á afmæli í dag.
Já ég trúi því varla að það séu 20 ár síðan að yndislega systir mín fæddist. Ég man það ótrúlega vel þegar að Heimir fór uppá spítala og ég var með "saumaklúbb" heima á Hraunkambi. Svo hringdi hann og sagði mér að það væri komin lítil sæt prinsessa í heiminn. Vááá fagnaðarlætin sem brutust út hjá okkur híhí. Þessi litla snúlla komin í heiminn sem átti svo eftir að rústa öllu málningardótinu mínu þegar hún náði að snigla sér inní herbergið mitt. Ég gleymi aldrei skömmustusvipnum eða réttara sagt prakkarasvipnum á henni þegar ég kom að henni, einu sinni sem oftar á kafi ofaní skúffunum mínum í herberginu mínu og gargaði á hana "Mardís hvað ertu að gera" þá leit hún upp öll úti sminki hehe.
Litla krúttið sem að beit alltaf í tærnar á Heimir Óla af því henni fannst svo gaman að hugga hann. Ábyrgðafulla og skynsama litla stelpan sem hafði áhyggjur af því hvort að það væri búið að ná í fötin hjá pabba sínum úr hreinsun og hvort að það væri búið að þrífa bílinn fyrir ferminguna hennar. Þessi elska sem skipuleggur allt fyrir allt og alla í kringum sig. Gerir tékklista fyrir öll ferðalög fyrir alla fjölskylduna og síðasta afrekið var að hjálpa sínum heittelskaða að byrja aftur í skóla.
Elsku yndislega Mardís mín ég vona að þú eigir góðan dag í Barcelona, ég vildi að ég gæti verið þarna með ykkur. En ég treysti á mömmu og Heimi að þau sjá til þess að þú eigir frábæran dag.
Miljón kossar og risastórt knús frá mér.


Ps: JYJ hugsa til þín líka í dag, knús.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 17:42:30 / astasteinunn

yearbook your self

Vá ég var að uppgvöta alveg frábæra síðu fyrir nokkru síðan. Það er hægt að setja sjálfan sig inní hin ýmsu tímabil, sumt alveg ótrúlega fyndið.
       

      


Ég mana ykkur í að prufa þetta http://www.yearbookyourself.com þetta er ótrúlega skemmtilegt.






» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 15:22:15 / astasteinunn

Játs

Já þá er búið að opna stofuna hennar Hafdísar, og Mardís systir er farin út til Barcelona. Ég setti einmitt linka hér til hliðar á bloggsíðuna hennar Mardísar í Barcelona og á myndasíðuna hennar líka.
Ég er búin að vera að reyna að setja inn myndir hér með blogginu mínu en það er ekki alveg að ganga, skil ekki alveg afhverju. Mér finnst nefninlega frekar skemmtilegra að hafa myndir með bloggi ;)
En já svo fer að líða að stórafmælinu hans Óla afa þar sem allir ætla að hittast útí sveit og elta gamala geit, gista, borða, skemmta sér og öðrum og hafa gaman. Ég bíð ennþá spennt eftir fyrstu sendingunum eftir rafrænum leiðum frá vinum og vandamönnum svo ég geti hafist handa við að gera mitt skemmtiatriði ( eitt af nokkrum hehe) Þið ættingjar sem lesið þetta blogg takið þetta kannski til ykkar og hjálpið mér að reka á eftir öðrum ;)

Jeij, ég náði að setja inn mynd vííííí


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 02:01:14 / astasteinunn

Mamma afmæli, Mardís að flytja út og Hafdís að opna stofu!!

Já það er vægast sagt mikið að gera á mínum bæ þessa dagana.
Mamma mín á afmæli (reyndar fyrir miðnætti) Innilega til hamingju með það elsku mammslan mín. Hún á sko eftir að eiga flottasta stórafmælisdag á næsta ári (09.09.09).
Svo er hún Hafdís litla sys að fara að opna hársnyrtistofuna Dizo á morgun, en formlega á föstudag. Svo að það er búin að vera stanslaus vinna við það undanfarna daga, enda er stofan orðin öööfga flott.

Síðast en alls ekki síst er Mardís elsku krúslan mín að flytja til Barcelona í dag :(
Æðislegt fyrir hana og ég vona elsku Mardís mín að þú skemmtir þér konunglega. En vááá þín verður sárt saknað, ætli heimilshaldið á Hellisgötunni verði ekki hálfkjánalegt á meðan þú ert í burtu??



» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2008 13:17:48 / astasteinunn

Nýjar myndir

Jæja þá eru byrjaðar að týnast inn myndir frá sumrinu í vefalbúmið mitt (linkur hér til hliðar)
Njótið vel


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 22:04:59 / astasteinunn

Bloggfrí, alveg að verða búið.

Jæja nú fer blogg sumarfríið mitt alveg að verða búið.
Er að fara að setja inn myndir frá sumrinu og byrja svo að blogga þegar ég kem til eyja.
Þangað til þá
See ya


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 23:31:36 / astasteinunn

Ég og Minn

eigum afmæli í dag. Já við erum búin að vera saman í 8 ár!!!!!!!! Pæliði í því, það er sko slveg slatti !!!! Esskan mín til hamingju með daginn

Mardís sys útskrifaðist á laugardaginn frá Verslunarskólanum og hélt hún dúndrandi veislu með Gunnari bróðir sem útskrifaðist frá Iðnskólanum viku áður. Innilega til hamingju með það krúslur.

(Mardís og Sigríður Margrét frænka)
Já og svo er ég að fara að vinna í Hafnarfirði í sumar!!! Mig grunar að hún Gudda grís verði eitthvað ánægð með það. Ég samdi samt um það að fá að vera í fríi yfir Goslok og Þjóðarann. Ég verð s.s að vinna sem yfirflokkstjóri yfir skólagörðunum hérna í HFJ, held að það verði bara gaman. Það er allavegana betur borgað en nokkur sumarvinna sem að ég fengi í eyjum og þar að auki er þetta vinna fram að skólanum í ágúst.
Þangað til næst See ya.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 23:05:17 / astasteinunn

Mardís og mamma

hlupu Kaupmannahafnarmaraþonið í gær. Já við erum að tala um heila 42 kílómetra!!!!
Þær náðu fyrsta takmarkinu sínu sem var að klára maraþonið og þær náðu líka takmarki númer tvö sem var að hlaupa undir 5 klst. Pæliði í því 5 klst!!
Ég er ekkert smá stolt af þeim. Reyndar skellihló ég þegar þær voru að segja mér hlaupasöguna. Mardís sagði t.d "þegar við vorum komnar eitthvað í kringum 30 kílómetrana og ég var hlaupandi og grátandi (af sársauka) þá hljóp eitthvað "krumpudýr" fram hjá mér spjallandi við annað "krumpudýr"" hehehehe sé þetta alveg fyrir mér.
Já þær eru þvílíkir dugnaðarforkar.
Íris "frænka á afmæli í dag og Gunnar Þór á morgun, innilega til hamingju með daginn elskurnar.



» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 14:10:48 / astasteinunn

Heimir Óli

litli bróðir er gjörsamlega að meika það í handboltanum þessa dagana. Hann er meira og minna búinn að vera í landsliðinu skipað leikmönnum 18 ára og yngri undanfarið ár. Þeir voru um síðustu helgi að spila á móti hérna heima, þar sem að sigurvegarar mótsins komust á evrópumótið í þeirra aldursflokki. Og jújú haldiði að þeir hafi ekki gert sér lítið fyrir og unnið alla sína leiki og þar með flogið inn á evrópumótið. En greyjunum var tilkynnt strax eftir mót að þeir gætu gleymt því að fara á Þjóðhátíð þar sem að mótið er strax eftir verslunarmannahelgi. En það er nú lítill fórnarkostnaður fyrir svona stórt tækifæri.
En nú er komið að stærstu fréttinni. Í fyrradag var hringt í Heimir Óla og hann boðaður á 3 landsliðsæfingar með A-landsliðinu, já ég sagði A-landsliðinu. Hann fór á sína fyrstu æfingu í gær og var alveg í skýjunum. Þeir voru 4 nýir sem voru boðaðir á þessar æfingar. Guðmundur landsliðsþjálfari sagði að þeir væru að spila í stöðum sem væri mikið verið að hugsa um til framtíðar, og að þeir væru taldir mjög efnilegir. Ef að þeir myndu halda áfram að standa sig vel að þá væru þeir framtíðar landsliðsmenn. Já hvað haldiði að maður sé ekki að rifna úr stolti ;)
Ég varð bara að monta mig hehehe.

Previous | Next

Hér eru þau krútt systkinin mín ;)
Já og Mardís er í dag að fljúga til DK með mömmu, þar sem að þær mæðgur ætla að hlaupa heilt maraþon á sunnudaginn í Kaupmannahafanarmaraþoninu.
Gangi ykkur alveg ótrúlega vel elskurnar mínar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 01:24:18 / astasteinunn

Já hvað segist??

Jæja já það er óhætt að segja að það sé orðið langt síðan ég ritaði eitthvað almennilegt blogg hér á þessari síðu minni. En já best að reyna að bæta eitthvað úr því.
Það helsta svona sem á daga mín hefur drifið undanfarið er að sjálfsögðu frumsýningin á "Hárinu". Nú erum við búin að sýna, sýndum 10 sýningar og gekk bara alveg ótrúlega vel. Við kláruðum s.s sýnigar síðastliðna helgi og héldum þar af leiðandi lokapartý á laugardagskvöldið sem var bara skemmtilegt. Það er ekki laust við að maður eigi eftir að sakna þess pínu að vera ekki öllum stundum  niðrí leikfélagi. En það verður víst nóg að gera í sumar líka með L.V
Svo  má auðvitað ekki gleyma að minnast á það að ég eignaðist yndislegasta frænda í heiminu geiminum þann 7 mars síðastliðinn. Það er strax búið að nefna prinsinn Ástþór "junior". Oh hann er bara sætastur!!!!!

Svo er hún Jóhanna Ýr og Gísli Hrafn sonur hennar að koma í fyrramálið og ætla að vera hér hjá mér og Gaua í sirka 2 mánuði, það verður bara stuð. Reyndar þurfa þau eitthvað að hliðra til um þær helgar sem að "Hótel Ásavegur" er upppantað hehe.
Já svo er ég hætt í Krónunni, og er svona í rólegheitum að leita mér að nýrri vinnu. Vona bara að ég fái eitthvað skemmtilegt að gera. Er jafnvel að pæla í að sækja um að vera flokkstjóri í sumar, held að það gæti verið skemmtilegt svona sérstaklega ef að veðrið verður gott.
Svo styttist bara í dúndur Goslokahátíð og svo auðvitað Þjóðhátíð júúúúbbbbíííííí.
Þangað til næst, see ya.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 23:00:34 / astasteinunn

Myndir

Já það eru komnar inn nýjar myndir í vefalbúmið mitt. Linkur hér til hliðar.
Er að uplóda albúmið, tekur smá tíma, en þetta er allt á leiðinni inn ;)
Svo tekur þetta svo langan tíma, þannig að ég blogga síðar.
See ya


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 04:09:00 / astasteinunn

Blogg og myndir á leiðinni

Já já ég veit....................
En það fer alveg að styttast í almennilegt blogg og set líka þá inn myndir í leiðinni;)
Já og Rúna mín frumsýningin var 14.mars og gekk bara alveg þrusu vel.
En já lofa því að það kemur meira mjöööög fljótlega 8|

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 01:48:25 / astasteinunn

Snjór, snjór, snjór

Jahá nú snjóar í Vestmannaeyjum, það er sko óhætt að segja það. Þetta er mesti snjórinn sem að hefur komið hér í vetur, og ekki hefur nú snjóað lítið undanfarið hehe. Það er það mikill snjór að ég og Laufey festum bílinn á leiðinni heim. Ég þurfti að hringja í pabba (nb, klukkan var að ganga hálf eitt) og hann kom að reyna að draga okkur, svo birtist Smári sonur Heimis og Eyglóar. Já og hann var á stuttbuxum og bol. Hann og pabbi bösluðust og brösuðust í næstum hálftíma þangað til að annar nágranni kom á aðeins stærri bíl og náði að draga bílinn hérna upp Ásaveginn. Jú og þá var Smári kominn undir stýri (já ég gafst upp híhí) . En já það er gott að eiga góða að um miðja nótt í snjóbyl ;)
En annars þá ganga æfingar alveg með eindæmum vel, allt að verða klárt júbbíí. Enda kominn tími á að allt fari að ganga upp þar sem að það eru bara rétt rúmar tvær vikur í frumsýningu.
En svona smá fréttir af kílóunum sem virðast vera að fjúka þó að ég hafi ekki farið í ræktina síðan að ég fékk þessa líka svakalegu flensu fyrir rúmri viku síðan. Við erum að tala um að ég varð svo ógeðslega veik að mamma kom til mín úr Hfj, hún þorði nú bara ekki öðru held ég. Ég var í stuttu máli sagt með rúmlega 40 stiga hita í rúma 3 daga!!!!! Já og geri aðrir betur. En já eins og ég var byrjuð að segja áðan að þá hef ég ekki beint verið að treysta mér í ræktina síðan að ég var veik, finnst ég bara ekki alveg vera búin að jafna mig. En svo fór ég áðan í einar náttbuxur sem að ég hef ekki notað í langan tíma af því að þær voru orðnar óþægilegar þröngar. En við erum að tala um að þær eru vægast sagt orðnar hólkvíðar á mig. Svo að ég er bara öfga spennt að fara næst á vigtina. Set hér inn nýjustu tölur um leið og það gerist.
En ég bið bara að heilsa í bili úr snjóstormnum mikla
Over and out.


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 14:49:47 / astasteinunn

Allt að gerast

Já það er óhætt að segja að það sé mikið um að vera á Ásaveginum. Hér er allt á fullu í lærdómi. Mætti nú samt alveg gefa mér meiri tíma í lærdóminn, en það er bara um að gera að taka einn stórann skurk í því að læra að þá er maður komin á rétt ról. Kílóin hverfa eins og dögg fyrir sólu, nú í síðustu viku voru 3,5kg farin sko 7 smjörlíkisstykki hehe. Svo er allt á fullu í leikhúsinu í upsetningu á "Hárinu". Frábær leikhópur, skemmtilegur mórall og bara allt að ganga upp þessa dagana. Við erum komin með hljómsveit svo að það verður "live" tónlist, sem að er bara skemmtilegt. En ég vil benda ykkur sem að hafið áhuga á að fylgjast með gangi mála, á leikfélagssíðuna okkar, það er linkur á hana hér til hliðar. En já annars er hann elsku Gaui minn farinn á sjó buhu. Ég er sko ekkert að fíla það, hann var búin að vera í fríi síðan á þorláksmessu svo að það var MJÖG erfitt að kveðja hann. En hann er nú voða duglegur að hringja þessi elska og það styttir nú pínu biðina eftir honum. En já vildi bara láta fólk vita að hér væri allt í keii. Þangað til næst. See ya

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 15:34:00 / astasteinunn

Já já

Já eins og sést á þessu blessaða bloggi mínu að þá er vægast sagt mikið að gera hjá manni þessa dagana. Skólinn er byrjaður á fullu og er ég ekki í vafa um að þessi önn verði erfiðari en sú síðasta. Bara nöfnin á fögunum sem að ég er í gefa það til kynna: "Heimspeki og hugmyndasaga", "Tölur og reikniaðgerðir", "Aðferðafræði" og "Talað mál". Já eins og ég sagði að þá held ég að þetta verði frekar snúið á þessari önn, en þá er bara að bíta á jaxlinn og koma sér í lærigírinn. En eins og staðan er í dag að þá er það ekkert það auðveldasta í heimi. Því eins og þið vitið að þá er ég auðvitað líka í leikfélaginu og þar sem að við erum að setja upp "Hárið" að þá gat ég ekki sleppt því að vera með ;) En ég er nú samt sem áður ekki í neinu "talandi" hlutverki heldur er ég meira í því að syngja, sem að mér finnst alls ekki leiðinlegt. Eiginlega finnst mér það bara alveg ótrúlega spennandi, því að eins og kannski flestir vita að þá eru lögin í "Hárinu" þess eðlis að það er ekki beint hægt að komast upp með það að raula þau hehe. T.d er eitt lagið sem að ég syng"Að eilífu" sem að Margrét Eir gerði ódauðlegt á sínum tíma, svo að það eru engin smá fótspor sem að maður þarf að feta í. En svo er hann elsku besti Gaui minn að fara út á sjó á sunnudaginn:evil: og ég er ekkert neitt ruuusalega spennt yfir því, en svona er nú víst lífið. En við megum vera heppin með að hann er í fríi í júlí svo að hann nær að vera í landi á goslokahátíðinni, afmælinu sínu (hann er að verða 40 vóóóó;) og svo líka þjóðhátíð, svo að betra gæti það ekki verið. En já má heldur ekki gleyma að segja frá því að við erum að standa í tuðrukaupum með Drífu og Gunna. Eða já það er réttara sagt búið að panta tuðruna og mótorinn. Þetta verður svaka fín tuðra, ég og Drífa höfðum nú kannski ekki mikið til málanna að leggja við val á tuðru, en við skiptum okkur nú samt smá af því hvernig hún ætti að vera á litinn hehe. Svo að í sumar er fólki boðið í tuðruferð þegar að það kemur í heimsókn. Hey svo er það eitt í viðbót, ég er byrjuð í svaka átaki í ræktinni, er búin að vera í tvær vikur og 2,5 kg farin. Pæliði í því, það er eins og 5 Ljóma smjörlíkisstykki. Já það byrjar vel og svo er bara að halda ótrauð áfram.

Jæja bið að heilsa í bili, ég er hætt að lofa því að vera iðnari við bloggið, svo að við sjáum bara til hvað gerist hér á síðunni. (en kommentin halda manni alltaf við efnið híhí;)

See ya 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 912 dögum
Þjóðhátíð
Dagsetning
29. janúar 2012
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 maí
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 30788
RSS tengill
Átrúnaðargoðin mín
Myndaalbúm