Elsku yndislega systir mín á afmæli í dag.
Já ég trúi því varla að það séu 20 ár síðan að yndislega systir mín fæddist. Ég man það ótrúlega vel þegar að Heimir fór uppá spítala og ég var með "saumaklúbb" heima á Hraunkambi. Svo hringdi hann og sagði mér að það væri komin lítil sæt prinsessa í heiminn. Vááá fagnaðarlætin sem brutust út hjá okkur híhí. Þessi litla snúlla komin í heiminn sem átti svo eftir að rústa öllu málningardótinu mínu þegar hún náði að snigla sér inní herbergið mitt. Ég gleymi aldrei skömmustusvipnum eða réttara sagt prakkarasvipnum á henni þegar ég kom að henni, einu sinni sem oftar á kafi ofaní skúffunum mínum í herberginu mínu og gargaði á hana "Mardís hvað ertu að gera" þá leit hún upp öll úti sminki hehe.
Litla krúttið sem að beit alltaf í tærnar á Heimir Óla af því henni fannst svo gaman að hugga hann. Ábyrgðafulla og skynsama litla stelpan sem hafði áhyggjur af því hvort að það væri búið að ná í fötin hjá pabba sínum úr hreinsun og hvort að það væri búið að þrífa bílinn fyrir ferminguna hennar. Þessi elska sem skipuleggur allt fyrir allt og alla í kringum sig. Gerir tékklista fyrir öll ferðalög fyrir alla fjölskylduna og síðasta afrekið var að hjálpa sínum heittelskaða að byrja aftur í skóla.
Elsku yndislega Mardís mín ég vona að þú eigir góðan dag í Barcelona, ég vildi að ég gæti verið þarna með ykkur. En ég treysti á mömmu og Heimi að þau sjá til þess að þú eigir frábæran dag.
Miljón kossar og risastórt knús frá mér.

Ps: JYJ hugsa til þín líka í dag, knús.