Appabei segir sína skoðun

28.02.2008 01:48:25 / astasteinunn

Snjór, snjór, snjór

Jahá nú snjóar í Vestmannaeyjum, það er sko óhætt að segja það. Þetta er mesti snjórinn sem að hefur komið hér í vetur, og ekki hefur nú snjóað lítið undanfarið hehe. Það er það mikill snjór að ég og Laufey festum bílinn á leiðinni heim. Ég þurfti að hringja í pabba (nb, klukkan var að ganga hálf eitt) og hann kom að reyna að draga okkur, svo birtist Smári sonur Heimis og Eyglóar. Já og hann var á stuttbuxum og bol. Hann og pabbi bösluðust og brösuðust í næstum hálftíma þangað til að annar nágranni kom á aðeins stærri bíl og náði að draga bílinn hérna upp Ásaveginn. Jú og þá var Smári kominn undir stýri (já ég gafst upp híhí) . En já það er gott að eiga góða að um miðja nótt í snjóbyl ;)
En annars þá ganga æfingar alveg með eindæmum vel, allt að verða klárt júbbíí. Enda kominn tími á að allt fari að ganga upp þar sem að það eru bara rétt rúmar tvær vikur í frumsýningu.
En svona smá fréttir af kílóunum sem virðast vera að fjúka þó að ég hafi ekki farið í ræktina síðan að ég fékk þessa líka svakalegu flensu fyrir rúmri viku síðan. Við erum að tala um að ég varð svo ógeðslega veik að mamma kom til mín úr Hfj, hún þorði nú bara ekki öðru held ég. Ég var í stuttu máli sagt með rúmlega 40 stiga hita í rúma 3 daga!!!!! Já og geri aðrir betur. En já eins og ég var byrjuð að segja áðan að þá hef ég ekki beint verið að treysta mér í ræktina síðan að ég var veik, finnst ég bara ekki alveg vera búin að jafna mig. En svo fór ég áðan í einar náttbuxur sem að ég hef ekki notað í langan tíma af því að þær voru orðnar óþægilegar þröngar. En við erum að tala um að þær eru vægast sagt orðnar hólkvíðar á mig. Svo að ég er bara öfga spennt að fara næst á vigtina. Set hér inn nýjustu tölur um leið og það gerist.
En ég bið bara að heilsa í bili úr snjóstormnum mikla
Over and out.

hafdís sys skrifaði
jæja nú eru bæði þú og jónas búinn að hafa rangt fyrir ykkur... :( en ég er egilega farinn að skilja Brjánsa Bumbubúa bara nokkuð vel... hann vill bara halda sér inni í hlýjunni..;) hann er ekkert að fíla þennan kalda snjó;P hehe
mamma skrifaði
Jæja hvað segja innilokaðir leikarar í dag????
sísí skrifaði
jæja jæja var að spá í að gera tilraun til þess að labba til þín hérna í næstu götu.. það er varla að maður leggji í það ! hef aldrei séð annan eins snjó á æfinni !!!!
sjett !
Þetta leikrit verður algjör snilld ! ég hlakka ekkert smá til að sjá þetta þegar það er tilbúið !!
Erla Ásmundsdóttir skrifaði
Til hamingju með litla frænda :)
Mamma skrifaði
Til hamingju með litla frænda, hann hefur loksins ákveðið að láta sjá sig litli prinsinn.
mamma skrifaði
Er ekkert að stytta upp á eyjunni?
Blogg, dóttir, blogg
Rúna frænka skrifaði
Sæl elskan,
ertu ennþá lokuð inni í snjónum.
hvenær er frumsýning?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 227 dögum
Þjóðhátíð
Dagsetning
15. mars 2010
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 maí
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 21384
RSS tengill
Átrúnaðargoðin mín
Myndaalbúm