Appabei segir sína skoðun

27.03.2007 20:16:41 / astasteinunn

Mardís í forseta!!!

Jæja nú er Mardís systir á fullu í kosningavikunni í skólanum sínum og er hún komin með síðu sem að ég hef sett hérna inn á link til hliðar. Endilega allir að kíkja á síðuna hjá henni hún er rosa flott, og þá má einnig benda á að Jóhanna Ýr bjó hana til fyrir hana.

En þetta er ekkert smá batterí þessar kosningar í Versló ég hefði aldrei getað ýmindað mér það. Ég kíkti þangað með Mardísi um helgina þegar að það var búið að koma öllum kosningarbásunum fyrir, og þetta var bara eins og í alvöru kosningum en ekki einhverjar framhaldsskólakosningar. Það er alveg ótrúleg vinna sem að er lögð í þetta, og jú auðvitað var Mardís með langlangflottasta básinn. Hún er búin að setja einhverjar myndir inn á síðuna sína , þannig að endilega allir kíkja.

null

(Mardís og mótframbjóðandinn hennar (allt í góðu:D )) 

Annars er bara fínt í Rvk, hlakka samt ýkt til að komast heim til mannsins míns. Því að hann er jú að fara á sjó eftir 2 vikur og á ég þá ekki eftr að sjá hann í sirka mánuð :( Allavega heyrumst síðar

Over and out


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 01:17:36 / astasteinunn

jæja jæja

Jæja ég sem ætlaði að vera svo dugleg í þessum blogg heimi, en ég er búin að vera að setja upp myspace síðu og hef þar af leiðandi verið svolítið upptekin af því hehe. Það er svolítið skemmtilegt concept sem að mér finnst minnsirkus soldið vera að apa eftir og ekki takast nógu vel til.

En jæja ég er að fara til Rvk á fimmtudag og verð í viku til tíu daga, það verður bara gaman. Reyndar er mamma akkurat að fara út á fimmtudag en ég mun alveg hafa nóg að gera þó að hún sé ekki í bænum (þótt að það hefði nú verið skemmtilegra að hafa mömmsu). En Mardís systir er að fara að bjóða sig fram til forzeta í Versló og hefst allt húllumhæið á mánudag þannig að ég býst við að aðstoða hana sem mest ég get. Þannig að ef að einhverjir Verzlingar ramba inn á þessa síðu þá bara að muna að kjósa Mardísi!!!! Ég hef fulla trú á því að hún eigi eftir að standa sig vel. Hún er búin að vera viðloðin félagsmálin í skólanum hjá sér síðan í grunnskóla þannig að reynslan ætti að vera orðin þokkaleg. Áfram Mardís.

 

 En ég komst að því á laugardag hvað ég er orðin alveg SVAKALEGA flughrædd ó mæ god. Ég tók s.s flug til Rvk á laugardag til að fara á Kaupásárshátíð. Ætla bara ekki að vera feimin við að segja frá því að ég fór að GRÁTA ég var svo rosalega hrædd og það hefur ekki gerst áður. Það var svo mikil ókyrrð og vélin var alltaf að falla niður og hristast og svo var þvílík snjóhríð í Rvk þannig að það þurfti að taka stefnuna frá Skaganum og taka blindflug þaðan. Skyggnið var það slæmt að við sáum ekki neitt fyrr en það rétt glitti í tjörnina og svo bara flugbrautina. Allavega þá gerði þessi ferð það að verkum að ég tek Herjólf elskuna mína í bæinn á fimmtudag og sef bara á mínu græna og hef það gott. zzzzzzzz

Over and out 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 00:17:28 / astasteinunn

blogga til að blogga

Jæja það er nú ekki mikið að frétta hér af eyjunni fögru. Mér líkar bara mjög vel að vera komin aftur í gamla djobbið mitt, fer svo í starfsþjálfun til RVK 22.mars. Á að vera í Bíldshöfðanum þar sem að er verið að fara að opna breytta og flotta búð (er svolítið kvíðin, en það verður allt í lagi)

Gudda graða er að koma um helgina og já ætli maður verði ekki að kíkja aðeins út á lífið með henni ;) Það var nú komin tími til að kjellingin léti sjá sig hérna á eyjunni hún hefur ekkert komið síðan á afmælinu mínu ussussuss.

Jæja nú fer vertíðin hérna að klárast þá fer maður kannski að sjá eitthvað meira af manninum sínum. Við t.d borðuðum saman kvöldmat í gær í fyrsta skipti í 3 eða 4 vikur. Það var næs því að ég hef ekki beint nennt að vera að elda hérna fyrir mig eina, er mikið búin að lifa bara á samlokum í grillinu o.s.fr.v Þannig að það var mjög gott að fá home cooked meel.

Var að tala við Jóhönnu Ýr frænku og hún er að búa til myndaband í kúrs í háskólanum sem að er algjör snilld. Myndabandið á að höfða til unglinga og er aðal spurningin í myndbandinu "hvað dettur þér fyrst í hug þegar að þú heyrir orðið múslimi" og þettta er ekkert smá flott hjá henni, hún sagði mér að Guðný Helga hefði komið með þá tillögu að senda myndbandið í Kastljósið, og finnst mér það alls ekki slæm hugmynd því að þetta myndband höfðar til allra. Jæja Jóhanna Ýr þarna hefurðu það, opinber áskorun :)

Jæja ætla að fara að koma mér í bælið

Málsháttur dagsins: "Betra er að standa á eigin fótum en annarra"


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 00:18:39 / astasteinunn

Ohhh hann er svo flottur

Var að horfa á Jay Leno og haldiði að flottasti maður í heimi hafi ekki bara verið í viðtali hjá honum. Mátti til með að skella inn mynd af honum. Hann er bara flottastur !!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 

 

 

Reynið að segja mér að hann sé ekki töffari, fyrir 30 árum og ennþá meira nú í dag :)

 

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 231 dögum
Þjóðhátíð
Dagsetning
19. mars 2010
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 maí
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 21424
RSS tengill
Átrúnaðargoðin mín
Myndaalbúm